GÓÐAN DAGINN, FAGGI
Sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur
Frumsýnt Lengd HVAR
26. júní 1:30 Salur 2
Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag.
Sýningin er morðfyndin og berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku sem þegar hefur verið sýnd yfir 140 sinnum í þremur löndum við frábærar undirtektir.
Góðan daginn, faggi var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2021 og sló þar í gegn. Sýningin fór síðan út fyrir landsteinana og sýndi á listahátíðinni Fringe í Edinborg. Nú snýr hún til baka og verður sýnd í Háskólabíói hjá Afturámóti í samstarfi við Stertabendu.
Leikari og höfundur
Bjarni Snæbjörnsson
Leikstjóri og höfundur
Gréta Kristín Ómarsdóttir
Tónskáld og flytjandi
Axel Ingi Árnason
„Góðan daginn faggi er ekki innantómt grín, heldur vel heppnað persónulegt heimildaleikhús sem skilur margt eftir hjá áhorfandanum. ”
- S.B. Víðsjá, RÚV
Afturámóti í Samstarfi við Stertabenda
Ljósmyndir: Leifur Vilberg Orrason