Besti vinur minn súpermann

Frumsýnt Lengd Forsalur‍ ‍
12. júní 45 mín

Söngleikur fyrir yngstu börnin

Hin fimm ára Melkorka getur ekki beðið eftir því að byrja í skóla, það eina sem stendur í vegi fyrir henni er að hún kann enn ekki að lesa. Þarf maður ekki annars að vera búinn að læra það áður en skólinn hefst? En þegar ofurhetjan Súperman birtist óvænt og lofar henni að fá uppfylltar þrjár óskir hefst fjörið. Saman halda þau á vit ævintýranna og kynnast skrautlegum persónum sem kenna þeim ýmislegt um lífið. Hér er á ferðinni fjörug ný barnasýning með frumsömdum lögum eftir JóaPé og Króla og leikhópinn, tilvalin fyrir öll börn og fjölskyldur þeirra.

Sýningin er með afslöppuðu móti, þ.e. ljós og hljóðtækni eru í lágmarki, og hentar því vel fyrir unga leikhúsgesti.

Leikarar
Elva María Birgisdóttir
Helga Salvör Jónsdóttir
Hrafnhildur Ingadóttir
Katla Þórudóttir Njálsdóttir
Mímir Bjarki Pálmason
Salka Gústafsdóttir
Stefán Kári Ottósson

Leikstjórn
Guðjón Ragnarsson

Handrit, lög og textar
Katla Þórudóttir Njálsdóttir
Kristinn Óli S. Haraldsson
Salka Gústafsdóttir
Sólbjört Sigurðardóttir
Stefán Kári Ottósson

Útsetning laga
Jóhannes Damian Patreksson

Grafísk hönnun
Katla Þórudóttir Njálsdóttir  

Framleiðslustjóri
Elva María Birgisdóttir

Dans- og sviðshreyfingar
Sólbjört Sigurðardóttir

Previous
Previous

Kæra náttúra, ertu að reyna að drepa mig?