
GÓÐAN DAGINN, FAGGI
Sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur
Frumsýnt Lengd Salur 2
26. júni 1:30 ekkert hlé
Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag.
Sýningin er morðfyndin og berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku sem þegar hefur verið sýnd yfir 140 sinnum í þremur löndum við frábærar undirtektir.
Góðan daginn, faggi var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2021 og sló þar í gegn. Sýningin fór síðan út fyrir landsteinana og sýndi á listahátíðinni Fringe í Edinborg. Nú snýr hún til baka og verður sýnd í Háskólabíói hjá Afturámóti í samstarfi við Stertabendu.
Góðan daginn, faggi snýr aftur!
Leikari og höfundur
Bjarni Snæbjörnsson
Leikstjóri og höfundur
Gréta Kristín Ómarsdóttir
Tónskáld og flytjandi
Axel Ingi Árnason
Afturámóti í Samstarfi við Stertabenda
Tilnefningar / verðlaun / viðurkenningar fyrir sýninguna:
Íslensku tónlistarverðlaunin 2024 - Platan Góðan daginn, faggi tilnefnd sem plata ársins í flokki „Tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir“
Gríman, íslensku sviðlistarverðlaunin 2022 - Axel Ingi Árnason tilnefndur fyrir tónlist ársins fyrir Góðan daginn, faggi
Gríman, íslensku sviðlistarverðlaunin 2022 - Bjarni Snæbjörnsson tilnefndur sem söngvari ársins fyrir Góðan daginn, Faggi
Morgunblaðið, leiklistargagnrýnendur 2021 - Góðan daginn, faggi valin eitt af fimm bestu leikverkum ársins.
„Góðan daginn faggi er ekki innantómt grín, heldur vel heppnað persónulegt heimildaleikhús sem skilur margt eftir hjá áhorfandanum. ”
- S.B. Víðsjá, RÚV
Endilega skoðið heimasíðu Stertabenda og Bjarna Snæbjörns fyrir frekari upplýsingar!
https://www.perplex.is/ og https://www.bjarnisnae.com/
Fylgið okkur á samfélagsmiðlum!
Instagram: https://www.instagram.com/perplextheatre/ og https://www.instagram.com/bjarni.snaebjornsson/














Ljósmyndir: Leifur Vilberg Orrason