Ástarseyði Bergamólíó Kroppinbaks

Frumsýnt Lengd Salur 2‍ ‍
10. júlí 1:30 mín

Nýtt íslensk leikverk eftir Einar Baldvin Brimar

Nú blása kaldir vindar í íslensku þjóðfélagi, samfélagsleg sundrung og áfengisverð aldrei hærra.

Af því tilefni hefur höfundur Nauðbeygðrar Messu Nýrra Tíma ákveðið að auka þjáningar íslenskrar alþýðu enn frekar með öðru verki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að koma í veg fyrir það af hálfu Eflingar og Ingu Sæland, félagsmálaráðherra. Helga Brá Brimar býður áhorfendum til fjarlæga konungsríkisins Moríu, þar sem konungurinn Belerfór hinn réttláti hefur látist af sárum sínum í hinu heilaga stríði. Því marserar Hatrammus hinn grimmi með allan her sinn í átt að Moríu til að setjast í tómt hásætið og eina von morískrar alþýðu er að Filippus krónprins taki við krúnunni. En til þess þarf hann að ganga í hjónaband, því lögin eru skýr; ógift konungsefni stendur til jafns við betlarasyni! Filippus getur hins vegar ekki hugsað sér að giftast enda plagar hann sönn, viðurstyggileg og leynileg ást sem meinar honum að taka við kvenkostum hins moríska heimsveldis. Bergamólíó kroppinbakur, göfugastur manna, fær það verkefni að gifta prinsinn áður en Hatrammus þrammar með máttugan her sinn inn um borgarhlið Moríu og blóð um götur rennur.

Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks er skörp og ófyrirgefanleg ádeila á samtímann þar sem kaldhæðinn húmor og alvörugefni vegast á. Höfundur verksins hefur um árabil einbeitt sér að því að hlúa að og lækna veikgeðja líkama á Landspítalanum en hefur nú ákveðið að segja skilið við læknasloppinn og einbeita sér að langveikasta sjúklingi heilbrigðiskerfisins, þjóðarsálinni.

Höfundur
Einar Baldvin Brimar

Aðstoðaleikstjórn
Tómas Arnar Þorláksson

Leikstjórn
Egill Andrason 

Leikarar
Arnór Björnsson
Freysteinn Sverrisson
Gugga í Gúmmíbát
Hólmfríður Hafliðadóttir
Mikael Emil Kaaber
Mímir Bjarki Pálma
Níels Thibaud Girerd
Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Starkaður Pétursson
Vilberg Andri Pálsson

Tónlistarstjórn og hljóðhönnun
Egill Andrason

Dramatúrgar
Melkorka Gunborg Briansdóttir
Elínborg Una Einarsdóttir

Búningahönnun
Helga Brá Brimar

Ljósahönnun
María Jóngerð Gunnlaugsdóttir

ATH: Sýningin er bönnuð börnum undir 15 ára.

Previous
Previous

AUÐVITAÐ ELSKA ÉG MÖMMU

Next
Next

Leikritið eftir Ingu Steinunni