Leikritið eftir Ingu Steinunni
Frumsýnt Lengd Salur 3
12. júní 2:30 mín
Leikritið eftir Ingu Steinunni er leikrit eftir Ingu Steinunni. Hún hefur unnið lengi að því og hún er nokkuð viss um að þetta sé hennar besta verk hingað til. Leikritið er aldrei eins vegna þess að á hverri sýningu fær hún til liðs við sig nýjan gestaleikara. Gesturinn fær handritið í upphafi sýningar og flytur verkið með henni án undirbúnings. Leikritið er spennuþrungið og fjallar um dramatískt vinnusamband tveggja lögreglumanna. Mikilvægt er að flytja verkið sem fyrst áður en að einhver stelur hugmyndinni hennar. Inga Steinunn er mjög spennt að fá ykkur og vonast til þess að þetta verði ógleymanlegt kvöld.
Hugmynd
Inga Steinunn Henningsdóttir
Handrit
Inga Steinunn Henningsdóttir
Elínborg Una Einarsdóttir
Grímur Smári Hallgrímsson
Leikstjórn
Grímur Smári Hallgrímsson
Elínborg Una Einarsdóttir
Hljóðmynd
Andrés Þór Þorvarðarson
Tækni
Grímur Smári Hallgrímsson
Grafísk hönnun
Björg Steinunn Gunnarsdóttir
Ljósmyndun
Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir
Sérstakar þakkir: Gestaleikarar sýningarinnar, Hákon Örn Helgason, Afturámóti og Tóma rýmið.